Verktakaréttur, fjármögnun og opinber innkaup

HerbergiLOGOS hefur um árabil verið leiðandi á íslenskum markaði í gerð verksamninga og í ráðgjöf til verktaka og verkkaupa vegna verksamninga og í ágreiningsmálum tengdum verksamningum.

Þá höfum við víðtæka reynslu í ráðgjöf um val á útboðsaðferðum og öðrum leiðum til að koma á fót verk-, þjónustu- eða vörukaupasamningum, við val á bjóðendum og kærendum, gerð útboðsskilmála og í gerð kæra til kærunefndar útboðsmála og andmæla við slíkum kærum.

Dæmi um verkefni sem unnið hefur verið að:

  • Stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar: Umsjón með allri samningagerð eiganda Smáralindar við hönnuði og verktaka vegna stækkunar verslunarmiðstöðvarinnar.
  • Tónlistarhús við Austurhöfn: Ráðgjöf við aðalverktaka í samningagerð við eiganda, hönnuði og undirverktaka.
  • Háskólinn í Reykjavík: Ráðgjöf við verkkaupa vegna nýbyggingar háskólans við Nauthólsvík.
  • Framkvæmdasýsla ríkisins: Ráðgjöf við Framkvæmdasýsluna og fjölmargar opinberar stofnanir tengdar henni vegna ýmissa opinberra framkvæmda svo sem Háskólatorgs, uppbyggingar á Alþingisreit, undirbúnings nýs háskólasjúkrahúss o.fl., svo og við úrlausn ágreiningsmála.
  • Landsvirkjun: Endurnýjun útboðsskilmála vegna verklegra framkvæmda.
  • Ráðgjöf við gerð verksamnings um byggingu gagnavers á Miðnesheiði fyrir Verne Holdings ehf.
  • Ráðgjöf við fjölmarga verktaka og verkkaupa við samningsgerð og úrlausn ágreiningsmála.
  • Opinber innkaup: Ráðgjöf við dómsmálaráðuneyti og Landhelgisgæslu Íslands við leigu á tveimur björgunarþyrlum. Rekstur fjölmargra mála fyrir Kærunefnd útboðsmála og dómstólum.
  • Kennsla í verktaka- og útboðsrétti við Háskóla Íslands frá 1990 og við Háskólann í Reykjavík frá 2006.

Helstu eigendur:
Ann Grewar
Erlendur Gíslason
Guðmundur J. Oddsson
Hjördís Halldórsdóttir
Othar Örn Petersen