Skattaréttur
Á skattasviði LOGOS starfa 4-5 sérhæfðir lögmenn og af þeim eru fjórir með meistaragráður í alþjóðlegum skattarétti eða í alþjóðlegum viðskiptarétti. Lögmenn skattasviðs hafa víðtæka reynslu á sínu sviði og vinna að fjölbreyttum álitaefnum fyrir erlenda fjárfesta og lánastofnanir, flest stærri fyrirtæki landsins, auk miðlungsstórra félaga og efnameiri einstaklinga.
Lögmenn skattalínu veita fyrirtækjum og stjórnendum þeirra ráðgjöf varðandi innlendan og alþjóðlegan skattarétt. Mikilvægur þáttur starfseminnar felst í því að veita ráðgjöf varðandi fjármögnun viðskiptasamsteypa, skattaleg áhrif afleiða, endurhverfra viðskipta og annarra fjármálagerninga, erlendar fjárfestingar og heildarskipulagningu alþjóðlegra viðskiptasamsteypa. Því er mikilvægt að lögmenn skattalínu starfi í þverfaglegum teymum með öðrum línum sem hafa á að skipa sérfræðingum í kauphallarrétti, félagarétti, fjármunarétti, afleiðusamningum, fasteignaviðskiptum o.s.frv.
Þá veita lögmenn skattalínu aðstoð í samskiptum við skattyfirvöld varðandi túlkun laga og alþjóðlegra samninga og sjá um kærur skattamála á stjórnsýslustigi og málflutning fyrir dómstólum.
Starfsmenn skattalínu vinna fyrir mörg af stærri fyrirtækjum landsins. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að tiltaka nákvæmlega að hvaða verkefnum hefur verið unnið fyrir hvern og einn, en sem dæmi um eðli verkefna má nefna:
- Skipulag á fjármögnun og kaupum á fyrirtækjum í Kanada, Bandaríkjunum, Indlandi, Kína og ýmsum öðrum Asíulöndum.
- Skipulag á fjármögnun og kaupum á fasteignum í Bandaríkjunum, Evrópulöndum (einkum Bretlandi, Þýskalandi og austur-Evrópu).
- Mat á fjármögnun og fjármögnunaraðferðum fyrirtækja og aðstoð við skattalega áhættustýringu.
- Unnið við kærur, stefnur og málflutning er varðar ágreiningsmál við skattyfirvöld, er varða hagsmuni allt frá hundruðum þúsunda til hundruða milljóna króna.
- Greining á skattlagningu vegna flóknari fjármálagerninga.
Helstu eigendur:
Bjarnfreður Ólafsson
Jón Elvar Guðmundsson