Sjó- og flutningaréttur
Hjá LOGOS starfa sérfræðingar sem búa yfir yfirgripsmikilli reynslu og menntun á sviði sjó- og flutningaréttar.
Á sviði sjóréttar veitum við ráðgjöf vegna flutningasamninga, skilmála farmbréfa, leigusamninga um skip, samninga við hafnarvinnumenn, smíðasamninga um skip, kaupsamninga um skip, skráningu skipa, björgunar, niðurjöfnun sjótjóns, árekstur skipa, líkamstjóns, farmkrafna og farm- og skipatrygginga.
LOGOS sér alfarið um alla lögfræðiráðgjöf fyrir Eimskipafélag Íslands hf. (Eimskip) og dótturfélög þess hérlendis, svo sem Eimskip Ísland ehf. og TVG Zimsen ehf. Hefur samstarf félaganna staðið allt frá stofnun Eimskips árið 1914.
Við höfum í gegnum árin aðstoðað innlend og erlend skipa- og útgerðarfélög, einstaklinga, P&I klúbba og vátryggingafélög á þessu sviði.
Á meðal viðskiptavina LOGOS eru Skeljungur, Landhelgisgæsla Íslands, Tryggingasmiðstöðin, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Nesskip, Dregg Shipping, sem og erlend vátryggingafélög og P&I klúbbar.
Helstu mál fyrir Eimskip frá september 2010 til ágúst 2011:
- Strand Goðafoss í febrúar 2011, þar með talin aðstoð við björgunarsamning, niðurjöfnun sjótjóns og viðgerðarsamningar.
- Strand Reykjafoss í apríl 2011, þar með talin aðstoð við niðurjöfnun sjótjóns og kröfugerð á hendur eiganda skipsins.
- Smíðasamningar við skipasmíðastöð í Kína í júní-ágúst 2011 um smíði á tveimur 875 gámaeininga gámaskipum, sem á að afhenda 2013. Unnið að gerð samninga, aðstoð í samningaviðræðum og frágangur ábyrgða í tengslum við kaupin.
- Flutningur dómsmáls fyrir héraðsdómi og Hæstarétti vegna samningsbundins haldsréttar Eimskips á grundvelli farmbréfa félagsins í farmi.
- Flutningur dómsmáls fyrir héraðsdómi vegna slyss á verktaka í vöruhóteli Eimskip.
- Almenn ráðgjöf vegna tímaleigusamninga um skip.
- Almenn ráðgjöf vegna framkrafna.
- Endurgerð flutningsskilmála Eimskips fyrir sjóflutninga (Bill of Lading/Sea Waybill).
- Endurgerð flutningsskilmála Eimskips fyrir landflutninga.
- Gerð skilmála fyrir tollafgreiðslu.
Önnur verkefni:
- Landhelgisgæsla Íslands, smíði varðskips í Chile, sem afhenda á í september 2011. Aðstoð við framlengingu á samningi og ábyrgðum.
- Tryggingamiðstöðin hf., rekstur dómsmáls á hendur Samskipum hf. vegna farmtjóns.
- Sjóvá-Almennar tryggingar hf., krafa á hendur erlendu skipafélagi og P&I klúbbi þess vegna tjóns á eldsneyti við losun í Hafnarfirði 2010.
- Dregg Shipping ehf., margvísleg ráðgjöf á sviði sjóréttar, þar með talið frágangur á niðurjöfnun sjótjóns í kjölfar strands M/V Axel í nóvember 2007.
- Skeljungur hf., ráðgjöf í farmkröfumálum.
- SVITZER Salvage BV, aðstoð við uppgjör björgunarlauna.
- Shell International, ráðgjöf í tengslum við olíuleit.
- Aðstoð við erlend útgerðarfélög í samningum við íslensk vátryggingafélög vegna uppgjörs á bótum vegna áreksturs skipa og björgunarlauna.
- Einar Baldvin Axelsson situr í stjórn Hins íslenska sjóréttarfélags.
Helstu eigendur:
Einar Baldvin Axelsson
Erlendur Gíslason
Pétur Guðmundarson