Flugréttur

LamparLOGOS hefur um árabil verið leiðandi á Íslandi í samningsgerð tengdri flugvélum, þ.e. gerð kaup-, leigu- og veðsamninga um flugvélar og umsjón með hvers konar réttindaskráningu á flugvélum.

Sem dæmi um nokkur af þeim stærri verkefnum á þessu sviði sem við höfum unnið má nefna:


  • Ráðgjöf til JetX (Primera) vegna leigu á tveimur B737-800 farþegavélum frá ILFC. Júní 2008.
  • Ráðgjöf til Icelandair vegna leigu á B757-200 farþegavél ásamt viðhaldsþjónustu til Gadair European Airlines á Spáni. Júní 2008.
  • Ráðgjöf til Icelandair vegna leigu á B767-300 farþegavél ásamt viðhaldsþjónustu til Air Niugini á Papua Nýju Gíneu. Febrúar og mars 2008.
  • Ráðgjöf til Air Atlanta Icelandic vegna sölu á tveimur Boeing 747-400 fraktvélum til Atlas Air. Janúar 2008.
  • Ráðgjöf til Icelandair vegna leigu á þremur Boeing 757-200 farþegavélum frá Babcock & Brown. Febrúar til júlí 2007.
  • Ráðgjöf til Icelandair vegna sölu og síðan leigu á tveimur Boeing 757-200 farþegavélum frá Babcock & Brown. Apríl 2007.
  • Ráðgjöf til JetX (Primera) vegna leigu á Boeing 737-800 farþegavél frá GECAS. Apríl 2007.
  • Ráðgjöf til erlendra banka í tengslum við kaup Avion Aircraft Trading á þremur Boeing 777 vélum. 2007.
  • Ráðgjöf til lettneska flugfélagsins Latcharter, dótturfélags Icelandair Group, vegna leigu á tveimur Boeing 767 farþegavélum frá Bandaríkjunum. 2007.
  • Ráðgjöf í tengslum við kaup Icelandair Group á tékkneska flugfélaginu Travel Service.
  • Ráðgjöf til Air Atlanta Icelandic vegna útleigu á Boeing 747-200 og -300 fraktvélum.
  • Ráðgjöf til lettneska flugfélagsins Latcharter, dótturfélags Icelandair Group, vegna leigu á fimm Airbus A320-211 flugvélum.
  • Ráðgjöf til lettneska flugfélagsins Latcharter, dótturfélags Icelandair Group, vegna kaups á Airbus A320-211 flugvél.

Helstu eigendur:
Erlendur Gíslason
Othar Örn Petersen