Fjármálaþjónusta og regluverk

LOGOS hefur á að skipa kraftmiklu og reyndu liði lögmanna með fjölbreytta reynslu á sviði banka og fjármálaviðskipta. LOGOS býður víðtæka þjónustu á öllum sviðum fjármálaumsvifa og hefur starfað bæði fyrir íslenskar og alþjóðlegar fjármálastofnanir á undanförnum árum auk starfa á vegum fyrirtækja í leit að lánsfé. Orðspor LOGOS á þessu sviði hefur borist víða eins og umfjöllun erlendra sérfræðirita á borð við
Chambers og
Legal500 staðfestir.
Sérfræðingar LOGOS hafa einnig veitt bönkum, fjármálafyrirtækjum og öðrum fjármálastofnunum ráðgjöf varðandi samskipti við hið opinbera og ýmsa rekstrartengda þætti. Hópurinn hefur liðsinnt ýmsum fyrirtækjum í eftirleik fjármálahrunsins í samstarfi við sérfræðinga af öðrum fagsviðum LOGOS. Til dæmis má nefna endurskipulagningu skulda, nauðasamninga og meðferð þrotabúa.
Helstu eigendur:
Ann Grewar
Carsten Møllekilde
Guðmundur J. Oddsson
Heiðar Ásberg Atlason
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson
Ólafur Eiríksson
Óttar Pálsson
Peter Mollerup
Þórólfur Jónsson