Félagaréttur og fyrirtækjaráðgjöf

Á LOGOS starfa sérfræðingar á öllum sviðum hefðbundins félagaréttar, sem og í tengslum við verðbréfaviðskipti lánasamninga, bankalögfræði og kauphallarétt. Helstu verkefni LOGOS á þessum sviðum er að veita alhliða ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, stofnun, fjármögnun og samruna fyrirtækja, bæði hérlendis og erlendis. Þá veitir LOGOS einnig ráðgjöf um hvaða félagaform hentar hverju verkefni hverju sinni.

Þá hefur LOGOS um árabil verið leiðandi við gerð áreiðanleikakannana, hvort sem er í tengslum við skráningu á markað, kaup eða samruna. Síðustu árin hefur umtalsverður hluti af starfsemi LOGOS verið ráðgjöf um fjárhagslega endurskipulagningu og endurskipulagningu á samstæðum, um fjármagnsflutninga, verkefnafjármögnun og ýmis mál tengd fjármagnsmarkaði.

Lögmenn LOGOS hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf vegna hvers konar lánasamninga og annars konar fjármögnunarleiða fyrirtækja, til dæmis með skráningu í kauphöll.

Helstu eigendur:
Ann Grewar
Guðmundur J. Oddsson
Óttar Pálsson
Peter Mollerup
Pétur Guðmundarson
Þórólfur Jónsson