Eignaréttur og fasteignakaup


SlólarVið aðstoðum umbjóðendur okkar í ýmsum málum tengdum fasteignum og jörðum. Á sviði fasteignakauparéttar felst vinna okkar fyrst og fremst í ráðgjöf vegna galla sem upp koma á fasteignum og réttargæslu því tengt. Á sviði eignarréttar veitum við meðal annars ráðgjöf um túlkun og beitingu jarðalaga og samningsbundinna forkaupsréttarákvæða, auk þess sem hverskyns skipulagsmálefni kalla á aukna sérhæfingu.

Einnig má nefna að fasteignaþróunarverkefni, þar sem land er keypt, skipulagt og verkefnið fjármagnað, færast í vöxt. Höfum við sinnt slíkum verkefnum á Íslandi, Spáni, Bretlandi og víðar.

Helstu eigendur:
Ann Grewar
Carsten Møllekilde
Guðmundur J. Oddsson
Othar Örn Petersen
Peter Mollerup
Ragnar Tómas Árnason