Tækifæri fyrir nýja liðsmenn

Hjá LOGOS hafa metnaðarfullir lögfræðingar tækifæri til að taka þátt í spennandi verkefnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki. Þótt LOGOS sé stærsta lögmannsstofa landsins þá er hún enn í örum vexti og bætast að jafnaði 3-4 lögfræðingar í hópinn á ári hverju.

Lögfræðingar LOGOS öðlast þjálfun og reynslu í margvíslegum lögfræðilegum álitaefnum í störfum sínum. Lögð er áhersla á endurmenntun lögfræðinga og meðal annars haldnir fræðslufundir auk námskeiða fyrir lögmenn stofunnar.  Þá er lögð áhersla á símenntun með þátttöku í námskeiðum, ráðstefnum og með kennslu.  Árlega sækja nokkrir liðsmenn LOGOS námskeið í útlöndum.

Nýir liðsmenn þurfa að standast kröfur um skipulögð vinnubrögð, nákvæmni og áreiðanleika og góða tungumálakunnáttu. Umsækjendur verða að vera reiðubúnir til þess að afla sér málflutningsréttinda á starfstímanum en kostnaður er greiddur af LOGOS. Hafir þú áhuga á því að starfa hjá LOGOS þá skaltu senda umsókn ásamt ferilskrá til Sigríðar Þorgeirsdóttur, skrifstofu- og starfsmannastjóra (sigridur@logos.is),  og við munum hafa samband við þig.