Orðið LOGOS

GangurOrðið LOGOS kemur úr grísku (•) og er öflugt orð sem á sér margar merkingar. Þó það sé oft þýtt á ensku sem "orð" getur það einnig þýtt hugsun, skynsemi, lögmál, siðaregla eða rökfræði, allt sem endurspeglar fullkomlega við okkar sérsvið.

Saga LOGOS

LOGOS lögmannsþjónusta rekur sögu sína allt til ársins 1907 þegar Sveinn Björnsson, sem síðar varð fyrsti forseti Íslands, opnaði Málflutningsskrifstofu í Austurstræti 7 í Reykjavík. Þetta var fyrsta lögmannsstofa landsins og þótti mörgum óðs manns æði að vera með slíkan lúxus sem sérstök skrifstofa þótti vera á þessum tíma.

LOGOS varð til með samruna A&P lögmanna og Málflutningsskrifstofunnar Suðurlandsbraut 4a.

Með samrunanum varð til öflug lögmannsstofa sem getur í krafti stærðar, reynslu og þekkingar veitt betri og sérhæfðri þjónustu og sinnt einstökum verkefnum á skjótari og hagkvæmari hátt en áður var mögulegt. Hefur stofan vaxið mikið frá samrunanum og til dæmis hefur veltan aukist um 20% á ári. Opnun útibús í London árið 2006 og Kaupmannahöfn árið 2008 var eðlilegt skref í ljósi þessa metnaðar og skapar LOGOS sterkari sérstöðu.