Alþjóðasamstarf

Alþjóðaviðskipti gera miklar kröfur um samstarf við erlenda lögmenn. Auk starfsstöðvanna í
London og
Kaupmannahöfn, er LOGOS félagi í
Lex Mundi, sem eru stærstu samtök óháðra lögfræðistofa í heiminum. Í samtökunum eru yfir 160 lögfræðistofur og er aðild að
Lex Mundi trygging fyrir framúrskarandi lögfræðiþjónustu hvar sem er í heiminum.
Með yfir 20.000 lögfræðinga á 560 skrifstofum í yfir 100 löndum, leggja félagar í
Lex Mundi til lögfræðiþjónustu og markaðsþekkingu svo til allsstaðar þar sem þörf er á. Aðild LOGOS að
Lex Mundi veitir okkur aðgang að lögfræðiþjónustu á heimsvísu, sem gerir að verkum að við getum uppfyllt þarfir viðskiptavina okkar um allan heim.