Ísland - Nýtt tækifæri - málþing í London
Bresk-íslenska verslunarráðið, þar sem Guðmundur J. Oddsson, eigandi og forstöðumaður London skrifstofu LOGOS, er í stjórn, hélt málþing fimmtudaginn 29. september 2011 í London, undir heitinu „Ísland – Nýtt tækifæri“.
Áhrifamenn í stjórnmálum, viðskipta-, fjármála- og orkugeiranum hittust í hjarta breskrar stjórnsýslu til að ræða framfarir Íslands eftir fjármálahrunið 2008, sem og til að meta horfur í efnahags- og viðskiptalífinu í framtíðinni.
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, flutti inngangsræðuna og í framhaldinu voru fluttar kynningar frá Má Guðmundssyni, bankastjóra Seðlabanka Íslands, Cyrus Ardalan, varaformanni Barclays Plc. og Helgu Valfells, framkvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs. Deginum lauk svo með ræðum frá Herði Árnasyni, forstjóra Landsvirkjunar og Franek Rozwadowski, sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi.
Á málþinginu var farið yfir þær endurbætur sem hafa átt sér stað og eru í gangi í efnahagslífinu á Íslandi, jákvæð áhrif þeirra, sem og velgengni þeirri sem Ísland hefur átt að fagna í kjölfar þess að hafa fylgt eftir fyrirskipunum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Áheyrendur fengu einnig að heyra umfjöllun um hvernig erlendir fjárfestar hafa í auknum mæli litið til íslands í jákvæðu ljósi um leið og áhrif kreppunnar fara minnkandi, og hvernig frumkvöðlastarfsemi hefur aukist í kjölfar kreppunnar. Að lokum fengu áheyrendur að heyra hvernig Íslandi gæti mögulega í framtíðinni séð bæði Bretlandi og öðrum Evrópuþjóðum fyrir raforku.
Hér að neðan má sjá pdf. útgáfur af glærukynningunum.
Arni_Pall_Arnason.pdf
Mar_Gudmundsson.pdf
Cyrus_Ardalan.pdf
Helga_Valfells.pdf
Hordur_Arnason.pdf
Franek_Rozwadowski.pdf
Fyrir allar nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Guðmund J. Oddsson, annaðhvort með tölvupósti á gudmundur.oddsson@logoslegalservices.com eða í síma +44 207 920 3020.